Ávarp við afhendingu 16. júní 2009

Ágæta samkoma, kæru vinir. Ég býð ykkur öll hjartanlega velkomin hingað í Listasafn Sigurjóns Ólafssonar á þessa athöfn nú þegar úthlutað verður öðru sinni úr Minningarsjóði Kristjáns Eldjárns gítarleikara. Ég ætla að byrja á því að þakka músíköntunum sem hér komu fram: Hljómsveitin gæti kallast Eldjárnsbandið: Ari Eldjárn, Halldór Eldjárn, Úlfur Eldjárn, Kristján Eldjárn Hjörleifsson og síðast en ekki síst söngkonan Unnur Sara Eldjárn sem nú ætlar að syngja með þeim tvö lög. Weep Willow og Tungl úr bréfi og svo ætlar hljómsveitin að enda með lagi eftir Kristján Eldjárn: Vélsög og vaselín.

Við hittumst hér síðast mörg hver fyrir tveimur árum þegar Kristinn H. Árnason gítarleikari tók við verðlaunum úr sjóðnum fyrstur manna. Þar var glæsilega farið af stað og áfram ætlum við að halda merkinu hátt á lofti. Minningarsjóðurinn var stofnaður af fjölskyldu, vinum og samstarfsmönnum Eldjárns eftir að hann lést 22. apríl 2002. Stjórn sjóðsins hafa frá upphafi skipað Þórarinn Eldjárn, Valdimar Tryggvi Hafstein, Jóel Pálsson, Eyrún María Rúnarsdóttir, Atli Rafn Sigurðarson og Guðmundur Pétursson.

Minningargjafir við útför urðu stofnfé en síðan hefur verið safnað ötullega í sjóðinn, tekið við frjálsum framlögum, seld minningarkort, hljómdiskur og bók. Minningartónleikar voru haldnir til fjáröflunar í Íslensku óperunni 21. apríl 2003. Geta má þess að nú síðast efldist sjóðurinn verulega vegna mikils fjölda minningargjafa sem honum bárust við andlát og útför Halldóru Eldjárn í desemberlok 2008 og vil ég nota þetta tækifæri til að þakka þau framlög sérstaklega.

Einhverjum þykir kannski forvitnilegt að vita hvernig sjóði eins og þessum hefur reitt af hruni og kreppu. Svarið er takk bærilega. Velviljaðir bankamenn veittu á sínum tíma ýmis góð ráð til betri ávöxtunar. Eftir þeim var ekki farið og því er staðan eins góð og hún getur verið. Það borgar sig stundum að vera illa að sér um fjármál, hikandi og hræddur. Stjórn sjóðsins hefur því séð sér fært að hækka verðlaunaféð úr hálfri milljón síðast upp í eina milljón króna nú. En ég eftirlæt síðan þeim sem vilja að reikna út hvort það er veruleg raunhækkun í evrum eða dölum eða norskum krónum. Áfram verður svo þessi háttur hafður á að veita úr sjóðnum á tveggja ára fresti fyrst um sinn en vonandi á hann svo með tíð og tíma eftir að eflast nægilega til að standa undir árlegri úthlutun án þess gengið sé á höfuðstól.

Allar helstu upplýsingar um sjóðinn er að finna á blaði sem liggur frammi á borði hér við innganginn, svo sem reikningsnúmer og slóð á heimasíðu sem nú hefur verið hresst upp og hún endurnýjuð.

Minningarkortin, hljómdiskinn Ljóð, hljóð og óhljóð og bókina með þýðingu Kristjáns Eldjárns eldri á Max og Mórits eftir Wilhelm Busch er að finna á sama borði. Ég hvet fólk til að taka sér eins og það lystir af þessum varningi og síðan getur hver og einn ósköp einfaldlega greitt andvirðið inn á bankareikning sjóðsins í rólegheitum og einrúmi eftir að heim er komið.

Stjórn sjóðsins tók snemma þá stefnu að hún skyldi sjálf velja og verðlauna einn framúrskarandi tónlistarmann hverju sinni fremur en að úthluta styrkjum og viðurkenningum út frá umsóknum. Við hyggjumst halda okkur við þessa aðferð. Enda ástæðulaust þegar einn snillingur er gerður mjög hamingjusamur að þurfa þá endilega um leið að gera þrjúhundruð aðra vonsvikna skv. umsókn. Að sjálfsögðu leitum við ráða og hugmynda um valið víðsvegar, enda vitum við ekki allt.

Frá upphafi hefur það verið stefnan að allir framúrskarandi tónlistarmenn komi til greina, óháð tegundum, stefnum, stílum, aldri, starfssviði eða hljóðfærum. Hugsunin er sú að ekki sé til fín músík eða ófín, há eða lág, rétt eða röng heldur einungis góð eða vond, sönn eða ósönn. Við teljum að þessi afstaða sé mjög í anda Kristjáns Eldjárns. Hún einkenndi allan hans feril og hann hefði án efa haldið áfram að starfa í þeim anda ef honum hefði gefist lengri tími. Fyrir honum var ekkert eðlilegra og varla reyndar í frásögur færandi þó hann á einum og sama deginum sæti fyrst hjá Óla bróður sínum suður á Kópavogshæli og léki Bach, tæki svo eitt djassgigg um kvöldið og léki svo með rokkbandi fram á rauða nótt. Allt var þetta fyrst og fremst músík.

Ágætu vinir.

Stjórn sjóðsins hefur einróma komist að þeirri niðurstöðu að verðlaunin skuli hljóta að þessu sinni Daníel Bjarnason, píanóleikari, tónskáld og hljómsveitarstjóri.

Daníel Bjarnason er fæddur 26. febrúar 1979. Hann stendur því á þrítugu um þessar mundir. Hann lauk burtfararprófi í píanóleik frá Tónlistarskóla FÍH vorið 2000. Sama ár hóf hann nám í tónsmíðum og hljómsveitarstjórn við Tónlistarskólann í Reykjavík og lauk þaðan prófi í hvoru tveggja vorið 2003. Daníel stundaði frá 2004-2007 framhaldsnám í hljómsveitarstjórn við Tónlistarháskólann í Freiburg í Þýskalandi og lauk þaðan prófi með frábærum vitnisburði. Síðan hefur hann unnið jöfnum höndum sem hljómsveitarstjóri og tónskáld með ýmsum hljómsveitum og listamönnum, meðal annars við Íslensku óperuna. Daníel er einn af stofnendum kammersveitarinnar Ísafoldar og hefur verið listrænn stjórnandi og hljómsveitarstjóri hennar frá upphafi.

Árið 2008 hlaut Daníel 2. verðlaun og sérstök meðmæli Alþjóðlega tónskáldaþingsins fyrir verk sitt All Sounds to Silence Come. Hann tók einnig á síðasta ári þátt í verkefninu Operagenesis fyrir ung tónskáld á vegum Konunglegu óperunnar í Covent Garden í Lundúnum . Í febrúar sl á Myrkum músíkdögum stjórnaði Daníel Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum í Háskólabíó þar sem leikin voru verk eftir Jón Asgeirsson, Hauk Tómasson og Þorkel Sigurbjörnsson og loks frumfluttur annar píanókonserts Daníels sjálfs, með Víking Heiðar Ólafsson sem einleikara.

Fjölhæfni Daníels við útsetningar og tónsmíðar má marka af samstarfi hans við tónlistarmenn á öðrum sviðum en því klassíska, svo sem Sigur Rós, Aminu og Ólöfu Arnalds og loks má nefna rómaða tónleika í Íslensku óperunni í samvinnu við hljómsveitina Hjaltalín á Listahátíð nú í maí. Daníel gekk nýlega til liðs við útgáfufyrirtækið Bedroom Community og mun diskur með verkum hans koma út síðar á árinu. Þar verður meðal annars að finna 1. píanókonsert Daníels, leikinn af honum sjálfum. Það er hans fyrsti einleiksdiskur en áður hafði hann staðið að tveimur diskum með kammersveitinni Ísafold 2006 og 2007, með ýmsum nútímaverkum, ma. áðurnefndu verki hans All sounds to silence come sem upphaflega var samið fyrir Ísafold í tengslum við sumartónleika í Skálholti.

Með allri þessari upptalningu er þó aðeins fátt eitt talið.

Framundan í haust er Ástardrykkurinn en Daníel mun stjórna tónlistinni í nýrri uppfærslu Íslensku óperunnar á þessari frægu óperu Donizettis. Það er mat okkar sem sitjum í stjórn Minningarsjóðs Kristjáns Eldjárns gítarleikara að hinn fjölhæfi tónlistarmaður Daníel Bjarnason sé í krafti hæfileika sinna og sköpunarkrafts, dugnaðar síns og metnaðar einstaklega vel til þess fallinn að hljóta verðlaunin úr sjóðnum að þessu sinni. Daníel Bjarnason er maður dagsins í dag og ekki bara það, hann er maður morgundagsins. Og það svo mjög að strax á morgun, á sjálfan þjóðhátíðardaginn, heldur hann rakleitt til Ísafjarðar með kammersveitinni Ísafold á tónlistarhátíðina „Við Djúpið“. Þar verður ma. frumflutt eftir hann nýtt verk fyrir selló og kammersveit.

Mig langar að biðja Daníel að stíga fram og ég ætla að biðja Unni Söru Eldjárn að afhenda honum heiðursskjal,verðlaunafé og blómvönd.

Við óskum Daníel innilega til hamingju alls velfarnaðar. Stjórn sjóðsins þakkar öllum sem komið hafa að því að undirbúa þessa athöfn. Sérstaklega þökkum við Birgittu Spur og hennar fólki fyrir húsaskjólið. Njótum nú veitinga og samveru. Þakka ykkur öllum fyrir komuna.

Þórarinn Eldjárn