Minningartónleikar 7. júní 2012 í Háskólabíói

Kaupa miđa

Tónleikarnir á facebook

Minningartónleikar Kristjáns Eldjárns

Fram koma međal annars:

Bubbi Morthens
Páll Óskar
Ham
Víkingur Heiđar
Ragnhildur Gísladóttir
Jack Magnet
Sykur
Kristjana Arngrímsdóttir
Guđmundur Pétursson
Jóel Pálsson
Einar Scheving
Ari Eldjárn
og Eva María Jónsdóttir.


Kristján Eldjárn

Minningarsjóđi Kristjáns Eldjárns gítarleikara er ćtlađ ađ verđlauna efnilega tónlistarmenn og afreksfólk í tónlist. Verđlaunin eru peningaverđlaun og er ţađ ásetningur sjóđsstjórnar ađ upphćđin skipti styrkţegann verulegu máli og veiti honum aukiđ svigrúm til ađ helga sig spennandi verkefnum á sviđi tónlistar.

Minningarsjóđurinn var stofnađur af ćttingjum Kristjáns Eldjárns, vinum og samstarfsmönnum eftir ađ hann lést 22. apríl 2002 tćplega ţrítugur ađ aldri. Á annan í páskum áriđ 2003 voru haldnir tónleikarnir ,,Í minningu Eldjárns’’, ţar sem fjöldi manns lagđi sitt af mörkum, en ágóđinn af minningartónleikunum rann óskiptur í sjóđinn.

Síđan ţá hefur fjáröflun fyrst og fremst byggt á frjálsum framlögum og sölu minningarkorta, auk ţess sem sjóđurinn hefur aflađ fjár međ ţví ađ gefa út hljómdisk og bók.

Diskurinn Ljóđ, hljóđ og óhljóđ međ tónlist Kristjáns viđ ljóđalestur Ţórarins Eldjárns, kom út 2003 og 2006 stóđ sjóđurinn ađ endurútgáfu á ţýđingu Kristjáns Eldjárns forseta á Max og Mórits eftir Wilhelm Busch.

16. júní 2007, ţegar Kristján hefđi orđiđ 35 ára, voru í fyrsta skipti veitt verđlaun úr minningarsjóđnum og hlaut ţau Kristinn H. Árnason gítarleikari.

2009 hlaut verđlaunin Daníel Bjarnason tónskáld og hljómsveitarstjóri.

2011 voru verđlaunin veitt Helgu Kristbjörgu Guđmundsdóttur, harmonikuleikara.

Ákveđiđ hefur veriđ ađ veita verđlaun úr sjóđnum annađ hvert ár í fyrstu, en árlega í framtíđinni ţegar sjóđurinn hefur eflst nćgilega.

Kennitala sjóđsins er 650303-3180, en reikningsnúmer 0513-18-430830.